Noti starfsmaður eigin bifreið í þágu atvinnurekanda, samkvæmt samkomulagi sem þeir gera, á hann rétt á greiðslu sem skal vera sú sama og ákveðin er af Ferðakostnaðarnefnd ríkisins hverju sinni.
- Við ákvörðun vegalengda skal mæld vegalengd frá brottfararstað til viðkomandi vinnustaðar og sömu leið til baka. Heimilt er að semja um fasta krónutölu pr. ferð er miðast við afmörkuð svæði og byggist á ofangreindu kílómetragjaldi.
- Minnsta gjald skal jafngilda gjaldi fyrir 11,11 km.
- Ef ekið er með efni og/eða tæki, sem annars þyrfti sendibíl til, greiðist 30% álag á taxta en 15% álag þegar verkfærakistur eru fluttar.
Ef atvinnurekandi óskar er starfsmanni skylt að færa akstursbók er tilgreini fjölda ferða og/eða ekna kílómetra til útreiknings gjaldinu.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article