- Atvinnurekandi leggur til öll verkfæri. Skylt er sveinum að gæta þess, að áhöld atvinnurekanda glatist ekki né skemmist af þeirra völdum og í vinnulok að hreinsa verkfæri og láta þau á sinn stað.
- Ef verkfæri eru í því ástandi að notkun þeirra auki slysahættu að dómi trúnaðarmanns og verkstjóra, skulu þau ekki notuð, enda tilkynnist það atvinnurekanda eða fulltrúa hans þegar í stað.
Verkfæragjald
- Óski atvinnurekandi þess að skipasmiður eða netagerðarmaður leggi sér til verkfæri, sbr. verkfæralista, greiðist verkfæragjald, sem nemur kr. 50,89 (m.v. 1.4.2019) hjá skipasmiðum og kr. 11,83 (m.v. 1.4.2019) hjá netagerðarmönnum. Gjald þetta tekur almennum launahækkunum.
- Um blikksmiði vísast til samkomulags Félags blikksmiða og Félags
blikksmiðjueigenda, dags. 3. maí 1995.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article