Byggiðn - Veikinda- og slysaréttur

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:35 AM by Baldur Guðmundsson

Almennt

  • Réttindin miðast við 12 mánaða tímabil
  • Réttur til greiðslna hefst eftir einn unninn mánuð.

 

Hver er réttur félagsmanna til launa?

Samfellst starf

Áunnin réttindi

Fyrstu sex mánuðina hjá sama atvinnurekanda:

 

Tveir dagar á fullum launum fyrir hvern unninn mánuð.

Eftir sex mánaða samfellt starf hjá sama atvinnurekanda:

Einn mánuður á fullum launum.

Eftir tveggja ára samfellt starf hjá sama atvinnurekanda:

Einn mánuður á fullum launum og einn á dagvinnulaunum.

Eftir þriggja ára samfellt starf hjá sama atvinnurekanda:

Einn mánuður á fullum launum og tveir á dagvinnulaunum.


  • Starfsmaður sem öðlast hefur þriggja mánaða veikindarétt eftir þriggja ára samfellt starf hjá sama atvinnurekanda og ræður sig innan 12 mánaða hjá öðrum atvinnurekanda heldur rétti til fullra launa í einn mánuð enda hafi starfslok hjá fyrri atvinnurekanda verið með eðlilegum hætti og rétturinn sannreyndur. Betri rétt öðlast starfsmaður eftir tveggja ára samfellt starf hjá nýjum atvinnurekanda.

 

Hver er réttur sveina í byggingargreinum til launa?

Samfellst starf

Áunnin réttindi

Fyrstu sex mánuðina í starfsgrein að afloknu sveinsprófi:

Tveir dagar á fullum launum fyrir hvern unninn mánuð.

Eftir sex mánaða samfellt starf í starfsgrein:

Einn mánuður á fullum launum.

Eftir eins árs samfellt starf í starfsgrein:

Einn mánuður á fullum launum og einn á dagvinnulaunum.

Eftir þriggja ára samfellt starf í starfsgrein:

Einn mánuður á fullum launum og tveir á dagvinnulaunum.

 

  • Áunnin réttindi starfsmanns, sem hættir störfum í starfs­greininni, skal haldast verði um endurráðningu að ræða í sömu starfsgrein innan eins árs. Á sama hátt skulu áunnin réttindi taka gildi á ný eftir eins mánaðar starf ef endur­ráðning verður eftir meira en eitt ár en innan þriggja ára. Hætti maður störfum í starfsgrein í meira en þrjú ár falla áunnin réttindi niður.
  • Eftir þriggja ára samfellt starf hjá sama atvinnurekanda eiga starfsmenn í ákvæðisvinnu einn mánuð á fullum launum, einn á fullum dagvinnulaunum og einn á dagvinnulaunum.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article