RSÍ - Styrkir úr sjúkrasjóði - dánarbætur

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:15 AM by Baldur Guðmundsson

Eingreiddar dánarbætur

Skilyrði

  • Hinn látni hafi viðkomandi verið sjóðfélagi í a.m.k. 6 mánuði þegar andlát hans bar að höndum.
  • Við andláts félagsmanns, sem ekki er á vinnumarkaði en var sjóðfélagi við starfslok er stjórn sjóðsins heimilt að greiða til dánarbús hins látna hluta dánarbóta. Skilyrði greiðslu skv. þessum lið er að hinn látni hafi verið sjóðfélagi samfellt síðustu  5 ár fyrir starfslok vegna aldurs/örorku, þ.e. var síðast félagsmaður aðildarfélags innan RSÍ. Stjórn sjóðsins hefur heimild til að meta aðildarsögu félagsmanns til lengri tíma ef félagsmaður var síðast félagsmaður aðildarfélags innan RSÍ.

 

Upphæð styrks

  • Við andlát félagsmanns er greitt til aðstandanda allt að kr. 464.300.- (frá 1. janúar 2023) vegna útfararkostnaðar, enda hafi viðkomandi verið sjóðfélagi í a.m.k. 6 mánuði þegar andlát hans bar að höndum.
  • Greiða eftirlifandi maka eða forráðamanni barns félagsmanns fyrir eitt barn undir 18 ára aldri á framfæri viðkomandi kr. 1.310.391.- og kr. 655.196.- með hverju barni eftir það(frá 1. janúar 2024). Heildarupphæð deilist jafnt á hvert barn. Heimilt er að greiða vegna barna allt til 21 árs aldurs, enda hafi barn sannarlega verið á framfæri sjóðfélaga og  ekki á vinnumarkaði.
  • Í tilviki félagsmanns sem ekki var við vinnu þegar andlát bar að höndum er greiðsla til eftirlifandi maka eða barna innan 18 ára aldurs að hámarki kr. 232.200. Stjórn sjóðsins hefur heimild til þess að greiða hluta dánarbóta til annarra lögerfingja sem kosta útför hins látna, að hámarki kr. 154.400.

 

Sjóðfélagar hjá Birtu lífeyrirsjóði

  • RSÍ vekur athygli félagsmanna sem eru sjóðfélagar hjá Birtu lífeyrissjóði að við fráfall sjóðfélaga getur eftirlifandi maki og/eða börn yngri en 18 ára sótt um maka- og/eða barnalífeyri hjá sjóðnum. Einnig getur verið réttur til fjölskyldubóta og er þar um sömu umsókn að ræða. Sjá nánar á heimasíðu sjóðsins birta.is

 

Fylgigögn með umsókn

  • Yfirlit yfir framvindu skipta frá sýslumanni.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article