Skilyrði
- Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
- Foreldri þarf að vera í a.m.k. 75% fæðingarorlofi, miðað við einn mánuð eða 50% fæðingarorlofi í 6 mánuði eða lengur og greiða félagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum, til þess að eiga rétt á styrk. Fæðingarstyrkur á við um alla sem njóta réttinda til fæðingarorlofs úr Fæðingarorlofssjóði, þ.m.t. fæðingarorlof vegna ættleiðingar. Mögulegt er að nýta styrkinn upp að 24 mánaða aldri barns/barna.
Upphæð styrks
- Heimilt er að veita fæðingarstyrk vegna fæðingar barns félagsmanns að upphæð 154.000 kr. fyrir hvert barn. Styrkupphæð miðast við hvert barn og að foreldri hafi stundað 100% vinnu sl. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna. Styrkurinn lækkar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi.
- Þurfi félagsmaður að draga úr vinnu eða hætta störfum vegna veikinda fyrir fæðingarorlof skal horfa til starfshlutfalls fyrir veikindin.
Fylgigögn með umsókn
- Greiðsluáætlun frá fæðingarorlofssjóði um töku fæðingarorlofs, þar sem hlutfall og lengd fæðingarorlofs kemur fram.
- Staðfestingu um starfshlutfall (ATH fyllist út af vinnuveitenda) sl. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna. Sækja eyðublað
- Vakin er athygli á því að styrkurinn fæst ekki greiddur fyrr en allt að þremur mánuðum eftir töku fæðingarorlof.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article